Svona er þetta gert...
14.07.2009 18:32:34 / ihi

Vísir, góðan dag!

Er alveg hætt að hugsa um í hvaða síma ég er að svara, ef það kemur ekki nafn heldur bara númer er því svarað á þennan hátt..svo já þannig kemstu að því hvort ég sé með númerið í símaskránni ;)

Þreytan er gríðarleg..ég nenni ekki heim því ég veit að ef ég kemst alla leið þangað og hugsanlega upp í rúmm þá verður hringt eftir svona 5 mín og ég þarf að stökkva fram úr, inn í bíl og bruna hingað niðureftir.

En sumarið er búin að vera æði..fiðringur og gaman. Þó svo að dramað hér á víkinni sé nú búið að vera í meiri kanntinum..úff þakka guði að ég næ að halda mér út úr mestu af því. Það er bara að þegja og þá fer maður bara ekki inn í dramað..glæsilegt. Úff já, ef ég kynni ekki að þegja..veit ekki hvar ég stæði þá í dag! Örugglega með hálfan bæinn með hatur á mér og vesen vesen :s

Ég tek hins vegar hlutunum með ró, nenni ekki að standa í þessu rugli. Ég tek sjensinn og stekk, lendi stundum ílla en ég heng þó ekki í loftinu og pæli í því og bý til drama ;)

Þegar ég hugsa til bara hafa fullt af leiðilegum hlutum gerst en mér er hreinlega alveg sama því ég lít á björtu hliðarnar og brosi framan í heimin :haha:

Lifum í núinu og höfum það gott ;)

Nothing takes the past away like the future!


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 22:38:08 / ihi

Mig dreymdi mann frá Galíleu..

..með undarlegan svip, hins ofsótta en undarlegri þó hans annarlega ró.
Ég spurðann hvað um væri að vera, hvað velti öllu af stað?
Ég spurði á ný, hann sagði aldrei neitt, sem hefðann ekkert heyrt.
Svo fylltist salur þröng sem réðist manninn á, með hatursglampa og heift að honum veittist þá, far svo frá.
Svo sá ég milljónir manna syrgja þennan mann og fólkið allt sagði milli sín, að sökin væri mín.

Eitt það besta verð ég að segja. Veit að ég hef mjög undarlegan tónlistarsmekk
Sakna mjög svo allra lagana sem ég var með í gömlu tölvunni minni. Öll lögin sem Helgi sendi mér með..Nightwish..nei djö** hún hét það ekki eða? Svo langt síðan en voru rosa góð :)
Öll Violent Femms lögin..úff ef maður nennti bara að ná í þetta allt aftur og ef maður gæti það! Hata þetta net hérna. En það fer nú að styttast í að maður flytji héðan. Er pínu byrjuð að hlakka til. Er samt rosa stressuð út af lokaritgerðinni..sæll, veit ekkert hvað við eigum að skrifa 8|
Komið þetta tímabil ársins enn einu sinni...er undarlegt en samt á vissan hátt gott..æji get ekki útskýrt það..bara undarlegt.

Hef hugsað mikið um Engilbjört og Illhugu þessa dagana. Málið er að bara að sumt fólk getur ekki tekist á við vondu hlið lífsins. Illhuga er þarna..við höfum öll að minnsta kosti eitt grænt auga..ég á hinn partinn..hef tvö;)
Er samt þreytt á því að vera græna augað fyrir aðra..nóg að vera mitt eigið. Verð ofbeldisfyllri með hverjum deginum en veit að þetta fer svona í byrjun apríl...gerir það alltaf;) Man of vel eftir þessum tíma í fyrra..úff við erum að tala um hrikalega erfiðan tíma :( Þessi tími sem ég vill hreinlega bara keyra út í buskann :)

How I dearly wiss I was not here...Morrison..úff góður!

Get ekki beðið eftir Mílanó! Spennt..svo það er best að fara að læra svo ég komist alveg örugglega ;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2009 23:56:18 / ihi

jájá erum við að tala um aðra viku!

úff alltaf eitthvað að gerast krakkar mínir :haha:
Í þessari viku var þó nokkuð að gera. Var í fríi í skólanum en fór samt í skólann alla dagana að læra..jebb dugnaður!!
Man ekki hvað gerðist á mánudaginn..hann er svo langt í burtu :p
Á þriðjudaginn kom mamma ef ég man dagana rétt og við fórum í ljós og svona. Fór svo til Kristínar en hún var rosa dugleg og eldaði handa okkur Ívari þessa gríðagóðu sveppasúpu og brauð í ofni..mmm..:d gott kvöld
Næsta kvöld var leikhús á Melum, Kristín góð að koma okkur á generalprufu! Snilldar leikrit:d
Komumst þangað..jebb rötuðum þangað :haha: og komumst þangað á yaris á sumardekkjum :p
Fimmtudaginn var svo kjúklingasúpa hjá Kristínu..mjög góð og svo fínasta kvöld heima hjá mér með Nandý, Atla, Kristínu og Magna.
Föstudaginn var svo rosa fínn líka. Passaði DK lengi þennan dag. Var líka með hana á fimmtudaginn, dúlluna mína;) Fór svo og sótti Hörpu mína og rosa gaman. Fór svo til hennar um kvöldið en hún var hjá Rakel og svo kom Sóley..fínt djamm með minni bestu ;)
Laugardagurinn var fínn..súpa og brauð hjá Olgu enda mamma og pabbi í heimsókn. Svo undirbúningur fyrir árshátíð. Magni kom með muffins sem við hökkuðum í okkur. NAMMI!!
Svo kom Hulda og við á árshátíð..æði.. kíktum til Kristínar í fyrir og milli partý. úff gaman gaman. Rólegur sunnudagur vegna veðurs..hulda veðurteppt og við fórum nú samt aðeins út með Magna og Atla og magni vildi sko fara á sínum bíl til að við mundum lenda í ævintýrum..hahah var nú lítið um þau en gaman samt:d
Já...bara æði alltaf eins og vanalega...getið séð það á myndunum frá árshátíðinni á facebook og á dagsljos.is/ha09 ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 16:31:59 / ihi

Erum við að tala um viku!!

Þetta er búin að vera frábær vika....fullt af svefn og alls enginn svefn :)

Man samt ekkert hvað gerðist suma dagana en það er bara seinni tíma dæmi sko :p
Á mánudaginn fór ég í sund með Atla, Sóley og Önnu og svo ísrúnt með sama nema Anna fór heim og Bjarni kom í staðinn..held við höfum skoðað nánast öll hverfi Akureyrar og flestar botngötur;)
Þriðjudaginn var svo farið í bíó með Atla, Theu og Kristínu og komst ég þá að því hvað kvennmenn eru geðveikir...ekki bara sumar...allar!!! Leið pínu crasy á þeim tímapunkti en ákvað samt að gera nokkuð sem ég sá að var geggjað asnalegt að lætur mann líta geðveikan út..sé samt ekki eftir því ;)
Þræddum svo allar stærstu götur Akureyrar..föttuðum að klukkan var orðin 3 og við svöng. Fórum því og ákváðum að baka vöfflur og svo bara kúrupartý. Svaf í svona klukkutíma og fór svo að taka mig til fyrir skólann. Fékk þá dásemdis sms frá Nönnu um að tíminn félli niður. Greyið Thea þurfti því bara að fara í skólann á meðan við Atli sátum í tjillinu í tölvunum okkar. En fórum nú svo bara að sofa. Svaf mest allan daginn og var bara inni í rólegheitum. Á fimmtudaginn var svo skóli og sofa og eitthvað fleira..man ekki. Nema um kvöldið leit ég til Arndísar og fékk að borða og svo í gala þemapartý og út að borða á Subway og Amor. Mín var driver og skemmti mér gríðarvel við það. Svo var aftur vöfflupartý og nú bættust Anna Lóa og Valli við partýið okkar..svo var bara 2-3 myndir og sofa smá þar til ég þurfti að fara passa fyrir Olgu. Greyið DK var lasin svo var pínu erfitt að fá hana til að sofa, eyrnabólgan ekki sú skemmtilegasta :(
Um kvöldið var svo....já vísindaferð í Kalda og fékk fínt matarboð frá fallegu fjarnemunum og náði að troða Kristínu og Atla inn í það :p
Fórum því og tókum Önnu Kristínu með eftir að ég var búin að hringja í nokkur vitlaus númer til að ná í hana :^)
Frábær matur, svo var öskudagsdæmi á Amour og ég kom sem badminton/tennisstjarna..rosa gaman;)
Var drulluþreytt og slöpp svo var farin heim um 2 og svaf bara. Fór svo í ljós og reyndi að taka til á laugardeginum áður en ég fór inn á Húsavík í afmæli til Auðbjargar og Írisar. Fór samt fyrst út að borða með Huldu og tókst að bakka á bíl en samt var það bara krókurinn og númeraplatan á hinum bílnum...vonandi ekki dýrt að laga númeraplötu :^)
En fór svo heim og ætlaði að fara klæða mig en já......góð og gleymdi töskunni inn á Akureyri :^) Hringdi í Atla og neinei hann og Kristín ákváðu bara að koma og taka töskuna með :haha:
Frábært afmæli og gott ball...................................fór svo heim um morguninn því þurftum að mæta í skólann í hræðilega leiðilegan tíma en bjargaðist. Fór svo í kaffi með Garðari og spjall...vá hvað kaffið var gott!!!! En svo ætlaði ég að reyna að sofa en nei..Atli kom og við fórum með Kristínu í sund og svo kínverskur eða tælenskur or what ever á eftir...allir að sofna í sófanum svo við fórum bara að sofa. Svaf eins og barn til hálf 10 þegar ég fór í skólann..úff enn þreytt!
Æðisleg vika, vöfflupartý, svefnlausar nætur og þó nokkrar óþarfa búðaferðir ;)
Lífið er gott!


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 14:27:34 / ihi

Villst hefur af leiðinni

...undan krumlum hans þar sveið...Já veistu er bara nokkuð ánægð með auglýsingarnar frá símanum..elska þetta lag nú reyndar alveg mjög mikið en finnst þeir ekkert vera að fara illa með það. Stúlkan í dyrunum minnir mig samt alltaf óhemju mikið á stúlkunni sem ég bjó með..Hafdís hét hún ef ég man rétt. Er ekki hún en hugsa alltaf til hennar þegar ég sé þessa auglýsingu. Sérstaklega þar sem maður veit nú alveg að þetta getur gerst! Man enn þegar Margrét talaði við einhvern gaur á msn og svo komu einhverjir 5 gaurar heim til okkar ekkert of hressir. Þeir bara búnir að finna út hvar hún átti heima og læti. Andrea drullaði nú bara yfir þá en þeir voru nú svona ..jahh 18-19 kannski og Margrét jahh 14 þá :s
Meira ruglið...sumt fólk er bara sjúkt!

Heilsan eitthvað slöpp núna..var komin inn í rúm um 9 í gærkveldi. Allir eitthvað lasnir..vorum alveg 5 í tíma! Alltaf gaman hvað fækkar og fækkar í þessum tímum með árunum. Verður samt örugglega aldrei minna en í tölfræðinni þar sem við vorum um það bil alltaf bara 3 sem mættum :p
Er eitthvað að drepast í lungunum..pínu kaldhæðni en ræðum það ekki...en vona bara að ég sé ekki að fá þetta sem Nandí og familía var með. Þetta fólk...alltaf að smita mann eitthvað.
Langar hrillilega að fara gefa blóð aftur en má ekki fyrr eftir svona já...3 og hálfan mánuð :s

Er enn að pæla hvernig þetta verður næsta vetur...veit ekki almennilega hvað ég á að gera en langar samt að vera hér fyrir norðan en get nú reyndar skipt um skoðun með nokkra mínútna millibili ;)

Væri til í nýja helgi..verst að næsta helgi verður skrítin og erfitt verður að plana hana. Fjarnemar í gangi sko...úff, sú seinasta enn í fersku minni :^)
Mojito, mojito og .....hmmm mojito ;)
Spurning um að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá Siggu;)
En það á víst að fara í Kalda á föstudeginum og svo er öskudagsdæmi á Amour. Svo er hugsanlega afmæli á laugardeginum inn á Húsavík en verst að ég þarf að mæta í skólann 8:10 á sunnudagsmorgninum 8|
Já, kemur allt í ljós á svona...föstudagsmorgunin hvernig fer ;)
Sér hvernig maður verður eftir galakvöldið:haha:



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 13:07:32 / ihi

Always know where your towel is!

Gerði þessi fínu kaup fyrir helgi. Þar sem ég er pínu tölvulega heft manneskja, sérstaklega núna þegar þeir taka downloadið svona frá manni um leið og maður var búinn að læra á þetta dót, þá verður maður víst að redda sér og kaupa hlutina! En já, keypti tvo góða diska :d Safna að sér meira rusli eins og það er kallað ;) Breyttir tímar og frelsi til sölu. Á nú samt ennþá Frelsi til sölu á plötu en leti mín hefur verið hrikaleg í vetur svo hef ekki einu sinni ennþá tengt þennan fína plötuspilara minn.

Helgin var frábær!!! Á ekki annað orð yfir það :) ...Breyttir tímar...passar vel;)
Byrjaði samt í raun á fimmtudeginum.. Kíkti nefnilega á þennan fína körfuboltaleik á fimmtudaginn, fyrsta sinn á ævi minni sem ég fer á svona leik. Magni fékk fjóra miða og gaf Atla tvo svo hann bauð mér. Var gríðaránægð þegar ég komst að því að ég vissi meira um þennan leik en Atli :d Þökk sé þessu 24 klst körfuboltamaraþoni sem ég fór í til styrktar minningasjóðs Þórðar. Góðir tímar og góðar minningar.
Leikurinn byrjaði vel fyrir okkar menn en endaði illa. Atli náði að næla sér í frían mat og ég látin borga allt of lítið fyrir hluti í sjoppunni..stúlkan var svo glær og þó ég reyndi að gefa hint um að ég ætti ekki að fá svona mikið til baka var hún ekki að ná þessu svo ég fór :^)

Vaknaði svo brjáluð á föstudaginn!!!! Vá hefði getað skotið Atla!! nei grín..ok bara meitt hann mikið ef ég hefði ekki verið svona þreytt! Þar sem hann fór út eftir leikinn á fimmtudeginum og gisti ekki heima hjá sér en var góður við mig og skildi vekjaraklukkuna sína eftir í gangi sem er staðsett upp við vegginn minn! Svo ég hlustaði á vekjaraklukku frá 7-10 um morgunninn með pínu hléum! Barði í vegginn eins og brjálæðingur en fattaði svo að hann væri að mestum líkindum ekki þarna! Var of löt til að labba yfir og slökkva á þessu :frown:
Kom alveg ónýt í skólann þar sem ég barðist við að skrifa áður en Nanna kæmi, alltaf of sein að klára allt ég:^)
Gekk bara vel hjá okkur, svo var það bara kíkja til Olgu, biðum í 2 tíma eftir að Gummi kæmi úr vinnunni svo ég, Olga og Atli gætum farið á bolluhlaðborð...mmmm þar var étið :p
Svo kom Halli og Hafdís og við öll í bónus sem tók vel sinn tíma þar sem Halli er lengur en versti kvennmaður að versla! ;)
Fór svo í pizzu til Halla, Hafdísar, DK og Gumma þar sem Olga stakk af suður. Við Halli og Hafdís fórum svo á þetta rosa fína barna skautadiskó, hehe gaurar á hlírabolum..jebb alveg að meika sig;)
Fór svo í stelpuglimmerpartý með Atla...eins og oft áður var hann eini karlmaðurinn á svæðinu :p Mjög gaman, einhver fín stelpa sem er förðunarfræðingur málaði mig og drifum okkur svo út. Átti þar ansi gott kvöld, fullt af dansi, hitti Símon og skipulagði Djúsí Líf reunion:) Fullt af skemmtilegu fólki og endaði með undalegri röð tilvika þar sem ég endaði í bíl á leið í eftirpartý, pirraði fyrrverandi Hildar og skipaði einhverjum gaur fyrir um leiðbeiningar að keyra mig heim, þakka þessum gaur fyrir skutlið, haha :haha: Sé sko ekki eftir þessu fína kvöldi :p

Vaknaði ...svona....jahh hress..um hálf 11 þegar halli hringdi. Og það var, búðir, borða, keila, bíó, bolluhlaðborð, sund, fótboltaleikur og matur. Allt þraulplanað. Tapaði í keilunni fyrir Hafdísi, kom ekki niður einni bollu svo horfði bara á, hitti Sollu í hlaðborðinu og ræddi reunion..styttist í þetta;) Svaf yfir leiknum og át yfir mig af pizzu annað kvöldið í röð.
Fór svo heim því ætlaði á 90´s í sjallanum með Sóley og Atla en svo kom Atli með þá frábæru hugmynd að fara á 80´s partý á Dalvík. Tókum þessari skyndiákvörðun vel og drifum okkur. Thea var yndi og keyrði. Hittum Magna og vini þar. Jahh...ræðum það ekkert mikið..fullt af fólki í illa lyktandi gömlum skíðagöllum. Flúðum á eyrina í 90´s í sjallanum...ekki það besta. Fullt af einhverjum slagsmálum...allir virtust undir 20 og ég var spurð um skilríki eins og oft áður!! ohh svo ungleg ;) ...og er nú reyndar ung ;)
Fínt kvöld, enn pínu þunn síðan kvöldið áður :^)

váá ég nennti að skrifa þetta allt ..eiginlega bara því ég er ekki að nenna að byrja að læra :^)
En komin í skrifa gírinn svo ljúkum þessu af í snatri ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2009 21:01:41 / ihi

Gotta get through this!

úff þetta lag ætlar bara ekki að hætta að óma í hausnum á mér svo ég byrjaði bara að hlutsa á það á youtube :p
Er að reyna að vera rosa dugleg þessa dagana og læra...gegnur allt í lagi en er samt bara búin að vera svo slöpp :s Hélt að ég væri bara ennþá þunn en er orðinn pínu langur tími svo býst við að einhver veikindi fylgi hér með, sérstaklega þar sem gummi er líka veikur :s

Hef það mjög gott þessa dagana nema hvað ég var búin að taka fallega til hérna fyrir helgi og nú er borðið mitt fullt af gosflöskum, flögum og dóti! Og mín rosa dugleg og ryksugaði..neinei flögur akkuratt þar sem ég sit alltaf á gólfinu og mín náttúrulega búin að vera þunn svo steig bara ofan á þetta eins og ég fengi borgað fyrir það :p

Erum nú byrjaðar á ritgerðinni..dugnaður!!!
Þarf svo að vera dugleg að koma dótinu mínu austur á Húsavík..úff þetta verður ekki gaman :(
Er svo léleg að flytja..held maður verði nú að vera duglegur og henda einhverju áður en maður fer að flytja þetta enn og aftur á milli!

Er samt ekki að nenna að fara beint í nám aftur svo er að pæla í að reyna að finna vinnu og helst hérna fyrir norðan. Finnst svo gott að búa hérna á norðurlandinu...elska það hér :haha:

Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima.
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2009 18:34:02 / ihi

Hvað er maður að pæla?

ohh ef maður bara vissi. Er ekki að fýla þetta seinþroska gelgjuskeið! Langar bara að halda áfram með lífið! Eignast fjölskyldu og hafa það gott..en samt langar mig enganveginn að festa mig mikið núna! Samt þar sem ég væri til í að festa mig get ég það ekki og er pínu heimskulegt bara...:s Upp á námið, líf mitt, framtíðina, vinnu og þess háttar. Æji ég veit ekki...finnst ég bara eitthvað svo mikið í öðru sæti ef ekki neðar og er ekki alveg að fýla það! Finnst eins og ég sé að kaupa mér hamingju og það er ekki góð tilfinning :(
Langar að segja margt en er hrædd um að eyðileggja eitthvað sem er samt í raun ekki til! Pirrandi!!
En núna er það bara að læra, læra og læra!!! Koma svo!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2009 19:41:06 / ihi

Ætli það sé ekki komin tími til að byðja Guð um að hjálpa sér?

úff vá hvað það er margt sem hefur gerst á þessum stutta tíma...fannst titillinn við hæfi en var að horfa á auglýsingu í sjónvarpinu sem hún kom fram! Svar mitt við henni er nei. Ég hef það bara svo gott að lifa bara í sátt og samlindi með kallinum að þarf ekki að fara biðja hann um einhverja aukalega hjálp....þó svo að maður telji að þó nokkrir sem ég fór með í þessaða blessuðu ferð ættu að fara að biðja um hjálp 8|

Haha þetta var nú samt bara gaman..öll þessi vika eiginlega!
Var mjög svo þreytt samt í byrjun vikunnar en kom frá Húsavík á sunnudagskvöldinu og tók því rólega. Á mánudaginn fór ég svo í leikfimi með Olgu...dugnaðurinn í okkur :) Um kvöldið ætluðum við Atli svo í sund en þegar ég hringdi í Sóley til að bjóða henni með spurði hún hvort Atli væri ekki að fara á staffadjamm. Við töldum það nú ráðlegast svo ég skutlaði þeim í fjallið og fór svo í ljós til að reyna ná vöðvabólgunni úr.. Atli kom svo heim seint um kvöldið og þá var farið í ævintýraferð í 10-11 og Strax...haha eyddum já svona 1 og hálfum tíma í 10-11 að tala við Villa og svo eyddum við pínu tíma í Strax og Atli að tala við einhvern gaur.

Þriðjudaginn var svo gefið af sér..fór með Atla að gefa blóð og kaupa þessar blessuðu skólabækur..eru nú reyndar enn allar í plastinu, þetta fer að koma ;) Fór svo með pínu mat til hennar Olgu minnar sem var alveg að drepast eftir leikfimi dagsins áður ;)
Man ekki hvað gerðist eftir það :s

Á miðvikudaginn var hrikaleg þreyta í gangi!! Man hreinlega ekkert hvað gerðist nema um kvöldið þegar ég vaknaði þá var ég svo löt að ég nennti ekkert að gera, spjallaði við Bjarna kallinn en nennti ekkert að gera! Náði þó að þvo föt til að taka með suður..Svo kom Atli heim..pínu drukkinn annað kvöldið þessa vikuna. Kom í heimsókn og við horfðum á mynd með poppi..haha aðeins of fyndinn þessa vikuna kallinn.

Á fimmtudagsmorguninn vaknaði ég hrikalega snemma þar sem ég var búin að redda klippingu fyrir Atla hjá Brynju upp í VMA og var svo drulluhrædd um að hann myndi ekki mæta og mér mundi lýða geggjað illa yfir því svo ég vaknaði til að vekja hann...hringdi og hann drullaði sér á fætur...hringdi aftur þegar það voru 5 mín í að hann átti að mæta og sagði að þetta byrjaði hálf 9 en ekki 9...hann á fullt og hurðum skellt..haha
Fór svo að pakka niður og taka mig til...mjög gaman. Svo bara upp í rútu og ekki voru liðnar fimm mínútur þá var búið að dreyfa bjór á liðið. Ég var frekar slöpp í þessu vegna vöðvabólgu og byrjaði ekki fyrr en um 2 og rétt náði að drekka 1 og hálfan bjór á þessum 7 TÍMUM sem tók okkur að komast suður. Enda voru tekin 6 pissustopp og var fólkið sem hætti sér í Hreiðavatnsskála hent út! Voru aðeins of yfir okkur höfð þetta fólk :$
Ég skellti mér til Evu um kvöldið og hitti næstum alla fjölskylduna, svo kíkti ég aðeins í bæinn og á Hlölla og svo skelltum við okkur upp á hótel og bara gaman gaman... Var örugglega ein af þeim lélegustu í drykkjunni fyrir utan þessa óvirku :^)

Föstudagurinn byrjaði á morgunmat og svo var farið í Seðlabankann..lala heimsókn..samlokur og gos og sátum í einum sal allan tímann, ekkert að skoða mikið. Svo var farið á Sólon og fyrsti bjórinn drukkinn. Spjallað og skoðað þetta sérstaka klósett sem þar er :haha:
Fórum svo í Marel sem var æði! fengum túr um húsið og bara mjög skemmtilegt...vorum nú reyndar nokkrar orðnar ansi svangar og svo loksins þegar maturinn kom var það bara einhverjar vondar snittur og ostar. Þegar við vorum rétt svo búin að henda í okkur svona einnu snittu hver og hálfu bjórglasi var okkur sagt að rútan væri komin og allir út! Var hrikalega léleg þennan dag líka og náði rétt að drekka 2 bjóra allan daginn :^)
Fór svo í mat til Hörpu minnar, frábær kjúklingur, er enn á lífi ;) Fórum svo til Kötlu og þar var fjör og gaman. Þau nenntu ekki út svo ég skellti mér með Steinari, Pétri og Agli út. Fórum first í hraðkeilu, höfðum 25 mín svo þetta var snöggafgreitt:p Pétur gafst snemma upp enda með yndislega konu sem beið hans heima. Við hittum svo Guðrúnu og Halldóra og djömmuðum með þeim langt fram á nótt. Svo voru drengirnir orðnir uppteknir af einhverjum dömum sem kannski sýndu þeim skemmtilegri áhuga en við ;) svo ég fór þegar Guðrún og Halldóra voru að fara heim, fann Atla og tók leigubíl með honum og einhverjum gaurum upp á Hótel. Farið í 10-11 og matur fundinn og hótelið í eftirpartý. Gaman Gaman :haha:

Vaknaði hress í morgunmat fyrir 10. Þar hitti ég Örnu Rún sem var að fara keppa í handbolta. Aðeins hressari en við hin þarna í ferðinni á náttfötunum í morgunmat. ;) Fór svo með Hörpu minni í Kringluna og Smáralind að kaupa og svona...keypti nú samt bara einn síma fyrir Gumma og tvær flíkur í Deb.. En samt rosa hasar.. fórum fyrst og fengum okkur aðeins að borða..sátum þarna í rólegheitunum. Þá spyr harpa mig hvað ég haldi að stúlkurnar á næsta borði séu gamlar..við vorum sammála um svona 12 ára en þær voru samt rosamálaðar. Eftir smá stund tekur ein gríðarsprett fram hjá okkur og hin eitthvað hikandi hleypur svo á eftir henni. Þá sjáum við öryggisverði koma á sprettinum...SÆLL sko hvað þau hlupu hratt. Rosa action í gangi 8|
Svo tók Harpa líka eina góða senu. Ákváðum að fá okkur kaffi og kakó áður en við færum í Smáralind og við stöndum við afgreiðsluborðið. Sér harpa skálar með svona síríus súkkulaði og bara "Úúú Nammi!" tekur eitt og byrjar að taka utan af því...ég stóð bara orðlaus og konan á kassanum bara "uu þetta kostar sko 40 kr"..."ó" og harpa skilar namminu aftur ofan í skálina...kemur þögn og heyrist þá í hörpu "Vandræðalegt!!!" og labbar í burtu! hahaha þetta var æði! æji hún á góð móment stúlkan :lol:
Fór svo í Vísindaferð í Vífilfell...bara gaman, fékk pínu hvítvín sem var ógeð svo Sprite-ið fékk mitt atkvæði og fínu flögurnar :p
náði að leggja mig í svona 20 mín og fór svo út að borða með Hörpu og Óla. Við Harpa kíktum svo í bíó á 3 tíma mynd takk fyrir!! mín að verða brjáluð:p
Fórum svo upp á Hótel þar sem allir voru mættir, Katla, Atli og Atli, Ásrún, Hreiðar, Ása og fullt fullt. Svo leit Hlíbban á okkur og kom með niður í bæ :d
Gríðarfjör, hitti fullt af fólki og endaði kvöldið með mat með Skúla frænda á Nonna bita. Tókum leigubíl og ég dreif mig í morgunmat upp á Hótel þar sem var nóg af fólki. Rétt um 8 vorum við bara orðin tvö eftir í morgunmat..kemur þá ekki Ingi (gulu villu gaurinn) og er ógeðslegur og alltaf að snerta á mér andlitið með ógeðslegu höndnum á sér svo þegar hann labbaði í burtu ákváðum við að flýgja á hæðina okkar...svo kom hann upp og þá ætlaði mín nú bara að fara að sofa en nei!!!! haha var ekki bara stúlkan með gaur inn í herberginu og ég dreyf mig aftur í morgunmat á meðan hún ætlaði að losna við hann en NEI!! ég komst ekkert aftur inn...svaf frá svona 8 - 10 í sófanum á ganginum á hæðinni sem við höfðum og fékks svo að fara í sturu hjá Atla og Önnu...dúndraði svo á hurðina og fékk að komast inn til að ná í dótið mitt..hehe pínu vandræðaleg!!! hehe en bara gaman..en fór svo bara með Halla norður..ekki að nenna að sitja í einhverri rútu með fullt af þunnu fólki :^)

Svo já bara skemmtileg ferð...lítill svefn en er búin að bæta það upp í dag ;)
Ætla svo að reyna að læra eitthvað í vikunni, fara í jóga og heimsækja ömmu, búin að lofa að koma seinustu tvær vikurnar og er ekki enn farin :s...svo bara leikhús á föstudaginn :haha:
Alltaf nóg að gera...jæja farin að lesa námsefni...Í ALVÖRUNNI!! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 21:00:07 / ihi

Borg óttans

Já þá fer maður í borgina um helgina. Hef ekki farið síðan í september og þá var það bara til að fara út og svo aftur á leiðinni heim. Hef ekki farið í stopp þar síðan í mars í fyrra.
En já..þetta er bara drykkjuferð...farið með rútu á fimmtudaginn..heyrði af því að það hefði þurft að hjálpa nokkrum út úr rútunni í fyrra vegna ölvunar...pant ekki vera sú manneskja í ár ;)
Á föstudaginn er svo vísindaferðir frá hádegi og svo eitthvað um kvöldið og svo laugardagur vísindaferð í Vífilfell og út að borða á Ruby Thuesday.

Vill samt reyna að hitta alla á meðan ég er þarna...svo langt síðan ég hef séð marga!

æji vá...er eitthvað svo þreytt...úff þarf að fara sofa eða eitthvað:cry:

Næstum öll fötin óhrein en lifi þetta af...hlít að finna eitthvað :p


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2009 22:21:56 / ihi

Hefur dreymt alla ævi að eitthvað hendi mig...

að þú komir til.........barabbabbaba

Já er næstum alveg hætt að dreyma því ég veit að ég get látið hlutina henda mig og snerta mig og allt saman í þessu fína lagi. Er anskoti hamingjusöm þessa dagana en fæ samt mín reiðisköst inn á milli...sem betur fer eru þau ekki út af minniháttar hlutum og hef fengið það staðfest að hún er eðlileg :p
Mér líður eins og ég hafi gleypt svona 20 fiðrildalifrur sem eru búnar að breytast í púpur og eru nú að springa út í maganum á mér...er bara eitthvað svo hamingjusöm....:haha:
Vá hvað ég skil Ásrúnu núna.. hvað hún meinti þegar hún kom í heimsókn þarna um árið...hún glóði...eins og ég geri núna:d
Sakna hennar og talsins hennar :(

En það er suður um næstu helgi...vonandi nær maður að hitta sem flesta :haha:

Ævintýrin gerast allt í kringum mig.......erum við of lítil til að standa hlið við hlið?

Finnið þið ekki hamingjuna sem ég er að senda :haha::haha::haha:

I´m waaayyy to in love with my live not to live it!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2009 22:06:28 / ihi

Hún ruglar alveg í hausunum á mér...

finnst eins og ég sé að fara .....vá datt út og veit ekkert hvað ég ætlaði að skrifa...mómentið..leyfi því að vera með;)
Veit hreinlega ekki mikið hvað er um að vera...geri mér enga grein fyrir því hvernig tíminn lýður því ég hef ekki borðað svo lengi og er máttlaus og rugluð....já sæll
bara ein lausn....borða!
Jæja ...þá er ég búin að borða og orðin hressari :haha:
hehe tekur mig oft of langan tíma að skrifa þessar færslur sem þó verða um ekki neitt:p
Er að hlusta á Danger Zone úr Top Gun....verð held ég bara að sjá þessa mynd...miðað við hvað lagið er hrikalega gott þá hef ég nokkuð miklar væntingar til myndarinnar ;)

Pæli eitthvað rosalega skrýtið þessa dagana og skyndiákvarðanir eru my thing :p
Ætla að skreppa suður fyrstu helgina í feb...held ég...langar en er eitthvað svo dauf núna að er ekki að meika að gera neitt!
Annars er ég að pæla í bara rólegheitahelgi á Húsavík um næstu helgi...sitja ein í lazyboy og horfa á góða mynd...langar að fara á svona dvd markað og finna einhverjar góðar myndir til að eiga...finnst úrvalið eitthvað svo takmarkað og leiðilegt sem ég á.

Var að vinna í gær...úff 9 tímar að drukknu fólki og helling af áfengi...mundi í alvörunni hvað helmingurinn af fólkinu vildi fá því það pantaði alltaf það sama og hvað fólkið sem lét skrifa á sig hét! Svo tókst mér að brjóta camparí flösku sem var svona hálf og gólfið á barnum mayjor klístrað hehe ....en gott kvöld..fæturnir búnir á því og vöðvabólgan tók völdin en....soooo worth it:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 17:36:57 / ihi

Kemur og læðist að manni

Já vitið hver það er?
Hjá mér er það vöðvabólgan..um leið og ég fer að hreyfa mig þá ákveður hún að koma í heimsókn...svo málið er annaðhvort að hreyfa mig svona jafn mikið á hverjum degi eða helst ekki að standa upp á daginn:p
Hef verið að stunda þetta síðarnefnda þó nokkuð en hef nú ákveðið að fara taka aðeins fyrri kostinn. Nú er nefnilega verið að bjóða upp á svona fría tíma hjá bænum og ætla að fara drífa mig í jógað..næ því nú reyndar bara einu sinni í viku en verð að láta mér það duga. Svo er víst einhver leikfimi og svona en veit ekki hvort ég nenni því. Gönguskíðin eru gríðarfreistandi en eru bara þegar ég er í skólanum svo missi af því :(
Svo er eitthvað fleira sem maður kannski kíkir á:d
Núna er það svo þessi blessaða ritgerð...þarf víst að fara læra eitthvað heima 8|
Ég veit!! Hljómar eins og í hryllingsmynd8|  ...og satt að segja er eins og ein líka:lol:

En ég hef það rosa gott þessa dagana...er alltaf svona upp og niður eins og vanalega en er svo miklu oftar upp núna svo er bara sátt :d
ótrúlegt en satt þá er ég ekki búin að plana næstu helgi...ég veit...kemur á óvart ;)
Væri nú alveg til í góða göngutúra með Lucy og Trixie en efast um að ég nenni inn á Húsavík...er búin að vera ansi mikið þar á seinustu misserum. Kannski ekkert skrýtið, gott og gaman að vera þar og dásamlegt fólk:d
Var bara komin með upp í kok af Akureyri og þurfti að breyta um umhverfi. Ýmsir hlutir sem voru að eyðileggja ánægju mína á Eyrinni en Olga og DK eru ansi góðar í að bæta það upp;)
og auðvitað yndislegu stúlkurnar mínar í skólanum..vá..ekki að nenna að telja þær upp ;)

En lífið er yndislegt...er nú reyndar ekki að takast að drepa Bylgju og Nönnu þó svo að ég hafi skilið þær eftir í fötu í meira en viku og bara gefið þeim að éta einu sinni :p Ekkert smá erfiðar!

Svarthvíta hetjan mín! Hvernig ertu í lit?



» 7 hafa sagt sína skoðun

17.01.2009 13:37:58 / ihi

Vá hef það frábært en ekki að nenna þessu :P

Já seinustu dagar eru búnir að vera fínir. Er nú reyndar búin að sofa heilan helling og setti met þegar ég svaf nánast streitulaust í 15 klukkutíma:!: Enda alveg búin á því :p
Er nefnilega ekki alveg búin að ná sólarhringnum til baka svo hef verið að leggja mig pínu á daginn en á fimmtudaginn fór ég í langan skóladag og reyndi svo að taka til og svo til Olgu að horfa á hana baka og éta pínu ;)
Eftir það keyrði ég til Húsavíkur og beint í langan göngutúr með Lucy og Trixie. Ekkert smá harka og veðrið var æði...jólasnjókoman alveg fullkominn og pínu kalt. Eftir það fór ég heim í svona 10 mínútur og svo í sund með Huldu. Mjög gott og þægilegt. Keypti svo ís og hélt heim. Hélst vakandi í svona klukkutíma og þá var ég dauð :lol:
Vaknaði svo alls ekki hress á föstudaginn með vöðvabólgu dauðans. Enda voru ekki tekin nema 1600 mgr af íbúfeni á þessum sólarhringi :^)
Skrapp til Huldu og fékk mér svo aðeins að éta en þá hringdi Halli...hvort ég væri ekki að fara út með hundana ;)
Svo skrapp í það og hjálpaði honum svo með einhver boð og stóla fyrir afmælið stóra..potturinn með mömmu og pabba og svo út!! Já auðvitað ;)
Fór til Írisar og átti góða stund með stúlkunum og fór svo í partý og á rúntinn og á baukinn og í eftirpartý..þá klukkan 5 og ég heim. OOOOGGGG allt þetta alveg bláedrú:d
Skemmti mér mjög vel..fékk mat, kók og kaffi mmmm gæti ekki verið betra;)

Svo er það útskriftarferðin á eftir! Það verður örugglega bara gaman. Hef samt lítinn áhuga á að drekka eftir þetta góða kvöld í gær :lol: Best að sjá bara hvernig stuðið verður;)
Bara gaman gaman þessa dagana en er samt þreytt..við lifum það nú af ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 22:09:45 / ihi

Einn skammt af athygli.

Vá hvað ég hef það gott! Og ég veit það!
Veit að margir myndu öfunda að hafa það öryggi sem ég hef en einhverra hluta vegna er þetta öryggi að gera afar lítið fyrir mig þessa dagana. Meðan vandamál stórrar hluta þjóðinnar eru peningamál og hafa öryggi í lífi sínu eru mín vandamál svo lengst á hinum endanum!
Margir, ef ekki flestir, velta sér þó mikið upp úr hinum vandamálunum eins og ég hef núna en í svona kreppuástandi lýður manni einhverra hluta vegna eins og maður megi ekki kvarta yfir þessum hlutum. Þið skiljið....það eru stærri vandamál þarna úti!!!

Sami vandi og á seinustu önn.. enginn athylgi. Langar samt rosalega að vera byrjuð á þessu lokaverkefnisdæmi og helst komin langt með það. Komst svo einnig að því í dag að ég skráði mig í hrikalegan áfanga!! Vá hvað mig langaði að öskra á kallinn.. held hann hafi pirrað mig meira en Bjarni Hjarðar!!! úff og það sem hélt niður reiði minni til Bjarna var að hann gat kennt en þessi virðist bara vera hálviti!

Svo er það útskriftarferð um næstu helgi...úff er eitthvað svo ekki að nenna því en finnst samt eins og ég þurfi nú að fara. Pæla í að kíkja á Húsavík á fimmtudaginn og fara svo bara í bústaðinn á laugardeginum eftir afmælið hjá frænku. Sjáum samt bara til hvernig þetta fer... fæ einhverja leiðindatilfinningu þessa dagana eins og eitthvað slæmt sé að fara gerast....einhver leiðindi og vesen..og satt að segja langar mig ótrúlega mikið að halda mig frá því. Bara spurning hver veldur leiðindunum, hvar og hvenær.

" Stingandi augnarráð særir mig
og skilur eftir djúp stungusár,
ég get lesið augnarráð þitt
af fjarri fallegu orðbragði.
Ég bíst við að þessi gagnrýni þín
verði að einhverju gagnlegu vonandi!
En viltu samt hætta að bíta og stinga í mig,
í hvert sinn sem ég geri eitthvað rangt,
fyrir hvert andspor og hverja hvíta lygi.
Ég geri allt til að bæta það sem ég hef gert í þessu skítalífi,
ég tek samt ranga beygjur enda festist í stöðuga vítahringi."


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
7. febrúar 2012
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 júlí
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 22834